Eftirfarandi ályktun var samþykkt samhljóða á fundi sveitarstjórnarráðs Framsóknar í gærkvöldi:
Sveitarstjórnarráð Framsóknar hvetur sveitarstjórnarfólk um land allt til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á vinnumarkaði, sem hafa það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu. Lækkun vaxta eykur kaupmátt allra heimila. Sveitarstjórnarráð Framsóknar styður að ríki og sveitarfélög tryggi gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum eins og ríkisstjórn hefur samþykkt enda setur Framsókn barnafjölskyldur í forgang. Jafnframt styður ráðið að dregið verði úr gjaldskrárhækkunum sem snúa að barnafjölskyldum.
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra…
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til…
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og…
Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en…
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs