Hvetur Eyjamenn til að skreyta nærumhverfi sitt með litum goslokahátíðarinnar
2. júlí, 2010
Um leið og goslokanefnd óskar Eyjamönnum og gestum góðrar skemmtunar um helgina viljum við hvetja Eyjamenn til að skreyta nærumhverfi sitt með litum goslokahátíðarinnar, þ.e svörtum, gulum, rauðum og appelsínugulum. Slíkar skreytingar settu skemmtilegan svip á bæinn í fyrra og er það von okkar að svo verði einnig í ár.