Í baráttu um titla á þrennum vígstöðvum
Karla- og kvennalið ÍBV í handboltanum eru í slag um titla á þrennum vígstöðum, í Coca Cola bikarnum, í báðum deildum og karlarnir eru á leið í átta liða úrslit í Áskorandakeppni Evrópu. �?að er því í mörg horn að líta hjá Karli Haraldssyni sem fer fyrir handboltanum hjá ÍBV- íþróttafélagi. Í Evrópukeppninni er leikið heima og heiman og reyndi ÍBV að fá báða leikina heim en það gekk ekki.
ÍBV hefur ekki farið stuttu leiðina í Evrópukeppninni, spilaði í Hvíta Rússlandi, Ísrael og núna er það Rússland. �??Já, við erum á leið í víking til Rússlands þar sem við mætum Krastnador sem er rétt norður af Svartahafi. Við erum búnir að sjá þá á myndböndum og eigum bullandi séns á að komast áfram. �?að er búið að draga í fjögurra liða keppninni þar sem við mætum annað hvort Fyllingen í Noregi eða Turda frá Rúmeníu. Að því gefnu að við komumst áfram,�?? sagði Karl.
�?að er leikið ytra 24. mars og hér heima viku seinna. �??�?ví miður gekk ekki að fá báða leikina hingað heim og það verður bara að takast á við það. �?etta verður gríðarlegt ferðalag, tekur sólarhring hvora leið en þessi ferðalög hafa þétt hópinn sem ætlar sér alla leið.�??
Um aðra helgi er fjórðungsúrslita helgin í Coca Cola bikarnum sem fram fer í Laugardalshöllinni þar sem bæði karla- og kvennaliðið ÍBV mæta. �??Undanúrslitin eru á fimmtudaginn og föstudaginn og mæta stelpurnar Fram og strákarnir Haukum. �?rslitin eru svo á laugardeginum og okkar möguleikar liggja í að gera Laugardalshöllina að okkar heimavelli. �?að verður brjáluð stemning og draumurinn er að koma heim með báða bikarana. �?á verður ÍBV handhafi allra bikara í bikarkeppnum í meistaraflokkum í handbolta og fótbolta karla og kvenna. Árangur sem ekkert félag hefur náð og verðum við með hópferðir á leikina gangi allt að óskum.�??
Bæði liðin eiga möguleika á deildinni, konurnar í þriðja sæti og karlarnir í öðru og eiga leik til góða. �??�?etta væri ekki hægt nema að hafa öflugt bakland og mæting á leiki hefur verið frábær,�?? sagði Karl að endingu.

Nýjustu fréttir

Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.