Í hvaða veröld lifa þernur og hásetar Herjólfs?

Í dag er þriðji dagurinn, sem verkfallsaðgerðir á Herjólfi lama samfélagið. Hver verkfallsdagur kostar samfélagið okkar tugi ef ekki hundruð milljóna. Lítið samfélag, sem situr nú þegar uppi með hundruð milljóna króna tjón vegna Kórónaveirufaraldurins. Það má vel vera að mönnum finnist samt í góðu lagi að berja á bæjaryfirvöldum, stjórn og framkvæmdastjóra Herjólfs. Ég vil aftur benda á að þeir sem verst fara út úr þessum aðgerðum eru ferðaþjónustufyrirtæki bæjarins. Harðduglegt fólk, sem tapað hefur nær öllu sínu í kjölfar veirufaraldurins. Ég er búin að finna mikið til með vinum mínum í ferðaþjónustunni hér og annarsstaðar í heiminum. Ég hef dáðst að því hvernig þetta fólk hefur verið að reyna að rísa upp aftur á þessum viðsjárverðu tímum. Sjálf er ég í sama forréttindahópi og Herjólfsstarfsmenn. Ég hef haldið vinnunni og mánaðalaununum þrátt fyrir ástandið í samfélaginu. Ég er á svipuðum launum og þernurnar á Herjólfi. Nema ég er ekki með fríar ferðir fyrir mig, mína og bílinn á milli lands og Eyja. Ég er ekki heldur með frítt fæði í vinnunni. Ekkert væri mér fjarri en að vera að krefjast launhækkunnar, þó ég hafi vissulega orðið kjaftstopp þegar ég sá hve vel er gert við ófaglært starfsfólk Herjólfs. Sjálf á ég að baki 6 ára háskólanám, um 30 ára reynslu af störfum í fjölmiðlum og ferðaþjónustu og ber nú ábyrgð á einu stærsta ferðaþjónustufyrirtæki Vestmannaeyja.

Ég vil hér með beina máli mínu til ykkar Herjólfsstarfsmanna. Ég þekki mörg ykkar af góðu einu, nú verð ég að benda ykkur á að þið hafið það alveg ljómandi gott á þessum erfiðu tímum! Aðgerðir ykkar eru að bitna á þeim sem síst skyldi. Vinir okkar í ferðaþjónustunni geta ekki meir. Við eigum einungis nokkrar vikur eftir af háannatímanum. Fyrir alla muni frestið þessum aðgerðum! Það getur ekki verið vilji ykkar að knésetja fólk sem ekki er svo heppið að vera með fasta vinnu á góðum launum á þessum erfiðu tímum, sem ekki sér fyrir endann á.

Kristín Jóhannsdóttir
Safnstjóri Eldheima

Nýjustu fréttir

Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.