Í skrapi á Gula teppinu og í Sláturhúsinu

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði í Vestmannaeyjum í gær og Bergey VE landaði þar í dag. Vestmannaey var með fullfermi af ýsu, þorski og karfa en afli Bergeyjar var um 60 tonn af ýmsum tegundum. Heimasíðan ræddi við Ragnar Waage Pálmason, skipstjóra á Bergey og spurði út í veiðiferðina. „Þetta var sannkallaður skraptúr hjá okkur en við vorum að reyna við tegundir sem eftir er að veiða á kvótaárinu. Þetta þarf gjarnan að gera þegar sér fyrir endann á kvótaárinu. Við byrjuðum á Pétursey í leit að sólkola en þar var lítið að hafa. Þá var farið á Ingólfshöfðann og þar fékkst ýsa. Síðan var haldið á Gula teppið sunnan við Tangaflakið og þar var verið í skrapi. Í lokin komum við svo við í Sláturhúsinu í von um að fá skarkola en árangurinn varð lítill. Í restina voru tekin þrjú hol við Ingólfshöfðann og þar fékkst blandaður afli; þorskur, koli og steinbítur. Það gengur á ýmsu í skraptúrum sem þessum,“ segir Ragnar Waage.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.