Yfirlýsing ÍBV:
�??Knattspyrnudeild karla hefur náð samkomulagi við Ian Jeffs og Alfreð Elías Jóhannsson til að stýra ÍBV út tímabilið. Alfreð var aðstoðarmaður Bjarna í sumar og þjálfari 2.flokks ÍBV. Hann mun halda áfram sem þjálfari 2. flokksins samhliða þessu verkefni. Ian Jeffs er leikmaður liðsins sem og aðalþjálfari meistaraflokks kvenna. Ian Jeffs mun einnig halda áfram sem þjálfari kvennaliðsins samhliða því að stýra karlaliðinu.
Knattspyrnuráð ÍBV hefur fulla trúa á nýja þjálfarateyminu og óskar þeim velfarnaðar í starfi. Um leið vill knattspyrnuráð karla þakka samstarfið við knattspyrnuráð kvenna við lausn á þessu máli.”