ÍBV á fjóra fulltrúa í U-18
Elísa, Þóra Björg, Amelía Dís og Sara Dröfn í B-keppni EM í Litháen í sumar, mynd HSÍ

Ágúst Þór Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson þjálfarar U-18 kvenna hjá HSÍ hafa valið þá 16 leikmenn sem taka þátt í undankeppni EM í Serbíu 22.-27. nóvember nk.

ÍBV á 4 fulltrúa í hópnum, þær Amelíu Dís Einarsdóttur, Elísu Elíasdóttur, Söru Dröfn Richardsdóttur og Þóru Björgu Stefánsdóttur. En þær spiluðu allar með U-17 ára landsliðinu í sumar þegar liðið tryggði sér 2. sætið í B-keppni EM í Litháen, en þá töpuðu þær naumlega úrslitaleiknum fyrir Makedóníu eftir að hafa unnið Spánverja í undanúrslitum. Þessi árangur tryggði liðinu sæti í undankeppninni en það er mikið undir, liðið sem vinnur þessa undankeppni kemst á EM U-19 ára landsliða 2023 og tryggir U-17 ára landsliðinu einnig sæti á EM 2023.

Fimm lið leika í undankeppninni, en ásamt Íslensku stúlkunum verða þar Austurríki, Slóvakía, Slóvenía og heimakonur frá Serbíu. Leikið verður í SC Vozdovac höllinni í Belgrad.

Leikjaplan íslenska liðsins:
Mán. 22. nóv. kl. 15:30 Slóvenía – Ísland
Þrið. 23. nóv. kl. 15:30 Ísland – Slóvakía
Fim. 25. nóv. kl. 18:00 Serbía – Ísland
Fös. 26. nóv. kl. 17:00 Ísland – Austurríki

Athugið að hér er um staðartíma að ræða, leikirnir verða auglýstir á miðlum HSÍ þegar nær dregur en auk þess verður ítarleg umfjöllun um leiki liðsins.

Nýjustu fréttir

Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.