ÍBV einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum - myndir
ÍBV lagði FH að velli í þriðja leik liðanna í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í Eyjum í kvöld, lokastaða 29:22
Eyjamenn settu tóninn strax í byrjun og náðu fimm marka forystu þegar um tíu mínútur voru liðnar, staðan 6:1. Stuttu seinna þurfti Gísli �?orgeir Kristjánsson, leikmaður FH, að fara af velli eftir viðskipti sín við Andra Heimi Friðriksson en Gísli �?orgeir skall harkalega með höfuðið í gólfið og hlaut fyrir vikið skurð og virtist vankaður um tíma. Einnig virtist öxl Gísla �?orgeirs hafa orðið fyrir hnjaski og kom hann ekkert meira við sögu í leiknum.
Við þetta efldust FH-ingar og náðu að minnka muninn í tvö mörk en þremur mörkum munaði hins vegar á liðunum þegar flautað var til hálfleiks. Í síðari hálfleik sýndu Eyjamenn hvers þeir eru megnugir og hleyptu gestunum aldrei nálægt sér.
Róbert Aron Hostert átti góðan leik fyrir ÍBV og skoraði átta mörk, einu marki betur en Agnar Smári Jónsson. Aron Rafn Eðvarðsson var einnig öflugur og varði 15 skot í markinu.
Myndir – �?skar Pétur Friðriksson

Nýjustu fréttir

Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Erlingur stýrði Minden til sigurs í sínum fyrsta leik
Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
ÍBV tapaði stórt gegn FH í Kaplakrika
Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
ÍBV sækir FH heim í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.