ÍBV-konur í undanúrslit Bikarkeppninnar

ÍBV varð í gærkvöldi fjórða liðið til að öðlast sæti í undanúrslitum Powerade-bikarsins í handknattleik kvenna. ÍBV vann Stjörnuna með eins marks mun, 23:22, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 12:7.

Frá þessu er sagt á handbolti.is

Undanúrslitin eru miðvikudaginn 15. mars í Laugardalshöllinni. Auk ÍBV eiga Haukar, Selfoss og Valur sæti í undanúrslitum. Dregið verður til undanúrslita.

Mörk ÍBV: Sunna Jónsdóttir 6, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 4/1, Birna Berg Haraldsdóttir 4, Elísa Elíasdóttir 3, Sara Dröfn Ríkharðsdóttir 2, Bríet Ómarsdóttir 1, Ingibjørg Olsen 1, Ásta Björt Júlíusdóttir 1, Harpa Valey Gylfadóttir 1.
Varin skot: Marta Wawrzykowska 11, 33,3%.

Úr leik ÍBV og Stjörnunnar í Eyjum fyrr í vetur.

Mynd – Sigfús Gunnar.

Nýjustu fréttir

Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann
Lífshagsmunir gegn græðgishagsmunum
Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Kótilettur til góðs í Höllinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.