ÍBV og FH skiptu með sér stigunum
Úr leik ÍBV og Stjörnunnar á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og FH gerðu 1-1 jafntefli í tólftu umferð Bestu deildar karla í Kaplakrika í dag. Eyjamenn komu inn í leikinn á miklu flugi en þeir höfðu unnið síðustu þrjá leiki sína í deildinni. 

FH ingar byrjuðu leikinn betur og náðu forystunni á 11. mínútu leiksins. Kjartan Kári Halldórsson tók þá hornspyrnu frá vinstri og Úlfur Ágúst Björnsson stangaði boltann í netið og kom FH í 1-0. Þannig stóðu leikar í hálfleik. 

Eyjamenn gerðu eina breytingu í hálfleik, Omar Sowe kom inn á fyrir Liam Daða Jeffs. Omar var ekki lengi að stimpla sig inn en hann var búinn að jafna leikinn eftir aðeins nokkrar sekúndur. Langur bolti kom fram völlinn og Jökull Andrésson, markvörður FH, kom út úr markinu og ætlaði að hreinsa burt en boltinn beint í Omar Sowe og í markið. 

Vicente Valor var nálægt því að koma Eyjamönnum yfir á upphafsmínútum síðari hálfleiks þegar hann átti skot í stöngina. Hvorugu liðinu tókst að ná inn sigurmarki og skiptu liðin með sér stigunum. Lokatölur 1-1.

Eyjamenn sitja í níunda sæti deildarinnar með 12 stig. FH ingar komu sér upp úr botnsætinu og eru í 11. sæti með sjö stig, jafnmörg stig og Þór, í neðsta sætinu, en með betri markatölu. 

Úrslit úr leikjum kvöldsins:

FH 1 – 1 ÍBV

Stjarnan 3 – 1 KA

Þór 2 – 4 Valur

Keflavík 3 – 2 KR

Mánudagur

19:15 ÍA – Fram

Nýjustu fréttir

Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Skemmtilegast að sauma í skólanum
Gaman að vera byrjaður í skólanum
Nýr hópur, nýjar áskoranir og mikil tilhlökkun hjá ÍBV
Systkinaafsláttur nær nú einnig til skráningardaga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.