ÍBV sækir FH heim í dag
Frá viðureign ÍBV og FH á Hásteinsvelli fyrr í sumar, sem lauk með 2:2 jafntefli. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

Kvennalið ÍBV mætir FH í efri hluta Bestu deildarinnar í dag, sunnudag. Leikurinn fer fram á Kaplakrikavelli og hefst klukkan 14:00.

ÍBV er í þriðja sæti deildarinnar með 30 stig eftir 20 leiki. Eyjakonur hafa unnið níu leiki, gert þrjú jafntefli og tapað átta. Markatalan er 36:39.

FH er í öðru sæti með 40 stig, þremur stigum á eftir toppliði Breiðabliks. Hafnfirðingar eru því í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn.

Bæði lið koma inn í leikinn eftir naum töp í síðustu umferð. ÍBV tapaði 2:1 fyrir Breiðabliki á Hásteinsvelli en FH laut í lægra haldi fyrir Grindavík/Njarðvík, 3:2.

Mikilvæg stig eru í húfi fyrir Eyjakonur í baráttunni um þriðja sætið. Stjarnan er þremur stigum á eftir ÍBV en hefur leikið einum leik meira. Þróttur er með 26 stig eftir 20 leiki.

Leikur FH og ÍBV hefst klukkan 14:00 á Kaplakrikavelli.

Nýjustu fréttir

Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.