ÍBV sækir KA heim
ÍBV er enn án sigurs í deildinni. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV sækir KA heim á Greifavöllinn á Akureyri í dag í lokaleik 6. umferðar Bestu deildar karla. Flautað verður til leiks klukkan 16:30.

Eyjamenn hafa átt erfiða byrjun á mótinu og eru í neðsta sæti deildarinnar með eitt stig eftir fyrstu fimm leikina. Liðið gerði jafntefli í einum leik en hefur tapað fjórum og er enn í leit að fyrsta sigri sumarsins.

ÍBV hefur skorað sex mörk í deildinni en fengið á sig sextán.

KA er í 10. sæti deildarinnar með fjögur stig eftir fyrstu fimm leikina. Norðanmenn unnu sinn fyrsta sigur í síðustu umferð og ætla sér án efa að fylgja því eftir á heimavelli.

Um mikilvægan leik er að ræða fyrir bæði lið í botnbaráttu deildarinnar en með sigri getur ÍBV minnkað bilið í næstu lið verulega.

Nýjustu fréttir

Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – Samfylkingin styrkir stöðu sína
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.