ÍBV sækir Víking heim á morgun
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Keppni í Bestu deild kvenna hefst á ný á morgun, fimmtudag, eftir hlé vegna lokakeppni Evrópumóts U19-landsliða. ÍBV sækir þá Víking Reykjavík heim á Víkingsvöll þar sem flautað verður til leiks klukkan 18:00.

Eyjakonur sitja í fjórða sæti deildarinnar með 14 stig eftir níu umferðir en Víkingur er í sjöunda sæti með 10 stig. Með sigri getur ÍBV styrkt stöðu sína í efri hluta deildarinnar og minnkað bilið í efstu þrjú liðin. Víkingar vilja hins vegar saxa á forskot Eyjakvenna og þétta baráttuna um sæti í efri hluta deildarinnar.

ÍBV hefur unnið fjóra leiki, gert tvö jafntefli og tapað þremur á tímabilinu, en Víkingur hefur unnið þrjá leiki, gert eitt jafntefli og tapað fimm. Bæði lið vilja því hefja seinni hluta mótsins af krafti.

Auk leiks ÍBV fara fram þrír aðrir leikir í deildinni á morgun:

  • Víkingur R. – ÍBV kl. 18:00
  • Fram – Breiðablik kl. 19:15
  • Þór/KA – Grindavík/Njarðvík kl. 19:15
  • FH – Þróttur R. kl. 19:15

Fréttin hefur verið uppfærð.

Nýjustu fréttir

Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.