Karlalið ÍBV í handbolta tók á móti botnliði ÍR í 20. umferð Olís deildar karla í Eyjum í kvöld. Leiknum lauk með 44-40 sigri heimamanna og eru Eyjamenn komnir í fjórða sæti deildarinnar eftir sigurinn. ÍR er á botni deildarinnar með sjö stig.
Eyjamenn voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik og komust í 3-0 á upphafsmínútum leiksins. ÍR jafnaði leikinn í 5-5 en staðan eftir stundarfjórðung var 12-9. Eyjamenn komust mest sjö mörkum yfir og leiddu með fimm mörkum, 22-17, í hálfleik.
ÍBV var með undirtökin í síðari hálfleik líkt og í fyrri hálfleik. ÍR ingar minnkuðu muninn í eitt mark, 31-30 þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Eyjamenn juku aftur forskot sitt og kláruðu leikinn nokkuð örugglega. Lokatölur leiksins 44-40.
Andri Erlingsson og Hákon Daði Styrmisson voru atvæðamestir í liði Eyjamanna með tíu mörk hvor. Jökull Blöndal Björnsson, leikmaður ÍR, var markahæstur með 14 mörk. Morgan Goði varði átta skot í liði ÍBV og Petar Jokanovic sex.
Mörk ÍBV: Andri Erlingsson 10 mörk, Hákon Daði Styrmisson 10, Elís Þór Aðalsteinsson 6, Kristófer Ísak Bárðarson 6, Daníel Þór Ingason 4, Sveinn José Rivera 3, Andri Magnússon 2, Anton Frans Sigurðsson 2, Haukur Leó Magnússon 1.
Næsti leikur ÍBV er mánudaginn 9. mars gegn Fram á útivelli kl. 19:30.
