ÍBV sigraði Fjölni örugglega - myndir
ÍBV og Fjölnir áttust við í Olís-deild karla í kvöld í leik sem hafði verið frestað í tvígang. �?að var viðbúið að Fjölnismenn myndu ekki vera líklegir til árangurs í leiknum þar sem liðið er á botni deildarinnar með einungis einn sigurleik en Eyjamenn aftur á móti í bullandi toppbaráttu.
Framan af var jafnræði með liðunum en í stöðunni 9:8 hrundi leikur gestanna og ÍBV skoraði næstu sjö mörk og breyttu stöðunni í 16:8. Eftir það voru gestirnir aldrei líklegir til að ógna sterku liði ÍBV sem fór að lokum með níu marka sigur af hólmi, lokastaða 31:22.
Theodór Sigurbjörnsson var markahæstur í liði ÍBV með sjö mörk, á eftir honum kom Sigurbergur Sveinsson með sex. Aron Rafn Eðvarðsson var með átta skot varin í markinu og Stephen Nielsen sjö.
Eftir 16 umferðir er ÍBV í öðru sæti Olís-deildarinnar með 26 stig, tveimur stigum á eftir FH.

Nýjustu fréttir

Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.