ÍBV spilar báða leikina á Spáni

ÍBV hefur samið við forráðamenn spænska félagsliðsins Costa del Sol Málaga um að báðir leikir liðanna í átta liða úrslitum Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik verði leiknir í Málaga. Vilmar Þór Bjarnason, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV staðfesti þetta við handbolta.is.

Leikirnir fara fram 12. og 13. febrúar í Polideportivo Ciudad Jardin, íþróttahöll Costa del Sol Málaga-liðsins.

Costa del Sol Málaga situr í fjórða sæti úrvalsdeildar kvenna á Spáni með 18 stig að loknum 12 leikjum eins og Gran Canari sem einnig er eftir í keppninni. Kanaríeyjaliðið dróst gegn þriðja spænska liðinu sem er eftir í keppninni, Elche frá Alicante sem sló Íslands- og bikarmeistara KA/Þórs út í 32-liða úrslitum í byrjun vetrar.

ÍBV-liðið hefur farið í gegnum þrjár umferðir í keppninni til þessa. Fyrst mætti liðið PAOK frá Grikklandi í tveimur leikjum ytra, síðan tóku við heimaleikir við Panorama frá Grikklandi í 32-liða úrslitum og tékkneska liðið Sokol Pisek í 16-liða úrslitum í byrjun ársins. Af sex leikjum hefur ÍBV unnið fimm en tapað einum, fyrri leiknum við PAOK ytra í lok október.

Nýjustu fréttir

Tæp 63 prósent segja nei í Suðurkjördæmi
ÍBV stelpunum spáð sigri í Olís deildinni – Strákunum spáð sjöunda sæti
Spyr Morgunblaðið spurninga sem RÚV lætur eiga sig?
Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.