ÍBV stelpurnar tryggðu sér annan leik með frábærum sigri
Birna Berg Haraldsdóttir. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta vann stórsigur gegn Val í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitillinn á Hlíðarenda í dag. Eyjakonur áttu frábæran leik og unnu leikinn með átta mörkum, 27-35. Staðan er nú 2-1 í einvíginu og tryggðu Eyjakonur sér annan leik, sem fer fram í Eyjum á þriðjudaginn. 

Eyjakonur byrjuðu leikinn gríðarlega vel og leiddu á upphafs mínútum fyrri hálfleiks. Eyjakonur leiddu mest með sex mörkum, 4-10, og var staðan þannig þegar stundarfjórðungur var liðinn. Valskonur komu hins vegar til baka og náðu að jafna leikinn rétt fyrir hálfleiks flautið í 14-14. Eyjakonur leiddu í hálfleik með einu mark, 14-15.

ÍBV stelpurnar byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti líkt og þann fyrri og náðu fljótlega fjögurra marka forystu. Valskonur virðust engin svör eiga við leik Eyjakvenna og var munurinn orðinn átta mörk þegar stundarfjórðungur var eftir. Ólöf Maren Bjarnadóttir, markvörður ÍBV, átti einnig stóran þátt í að munurinn var svona mikill, með frábærri markvörslu. Eyjakonur náðu mest tólf marka forystu og unnu þær að lokum öruggan átta marka sigur. Lokatölur leiksins 27-35.

Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV, var markahæst í leiknum með níu mörk. Ólöf Maren Bjarnadóttir varði fimmtán skot í marki ÍBV.

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 9 mörk, Birna Berg Haraldsdóttir 7, Agnes Lilja Styrmisdóttir 6, Britney Emilie Florianne Cots 6, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 2, Birna Dís Sigurðardóttir.

Fjórði leikurinn í úrslitaeinvíginu fer fram í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn kl. 18:00 og geta Eyjakonur með sigri þar tryggt sér oddaleik.

Nýjustu fréttir

45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum
Fólk hvatt til að tryggja sér miða í forsölu
Ekkert gert í átta ár í Landeyjahöfn en nú er hlaupið til
Aldursmörk fyrir læknisvottorð hækka úr 65 í 75 ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.