ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA
Úr leiknum í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og ÍA mættust í 19. umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í kvöld. Leiknum lauk með 1-3 sigri gestanna.

Fyrri hálfleikur var frekar bragðdaufur. Skagamenn náðu forystu eftir tæpar 40 mínútur með glæsimarki frá Hauki Andra Haraldssyni. Hann fékk þá boltann rétt fyrir utan teig og fór fram hjá fjórum varnarmönnum ÍBV, inn á teignum, áður en þrumaði boltanum í nærhornið. Staðan 0-1 í hálfleik. 

Skagamenn tvöfölduðu forystu sína á upphafsmínútum síðari hálfleiks. Viktor Jónsson kom þá boltanum á Markús Pál Ellertsson sem lét vaða á markið fyrir utan teig og boltinn í fjærhornið. Staðan orðin 0-2. 

Eyjamenn minnkuðu muninn á 67. mínútu leiksins þegar Omar Sowe skoraði eftir sendingu frá fyrirliðanum, Alex Frey Hilmarssyni. Eyjamenn reyndu að sækja jöfnunarmark en það voru Skagamenn sem juku forskot sitt stuttu síðar. Viktor Jónsson slapp þá einn í gegn á móti Ara i Haraldstovu Petersen, markvarðar ÍBV, og lagði boltann í nærhornið.  

Róbert Elís Hlynsson fékk frábært færi til að minnka muninn fyrir ÍBV á 82. mínútu en skot hans beint á Árna Marinó Einarsson, í marki Skagamanna. Nær komust Eyjamenn ekki og niðurstaðan því 1-3 tap á heimavelli. 

Eyjamenn eru nú án sigurs í síðustu sex leikjum sínum. Þeir sitja í níunda sæti með 17 stig. Skagamenn eru komnir upp í fimmta sæti og eru með 25 stig. 

Úrslit kvöldsins

KR 3 – 3 Breiðablik

FH 2 – 4 Víkingur R.

ÍBV 1 – 3 ÍA

0-1 Haukur Andri Haraldsson (’39 )

0-2 Markús Páll Ellertsson (’48 )

1-2 Omar Sowe (’67 )

1-3 Viktor Jónsson (’72 )

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina
ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA
Hlynur Andrésson hljóp maraþon á EM í morgun
Aníta Óðinsdóttir – Tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta sinn
Nýbyggingin við Tangagötu tekur á sig mynd
Mikilvæg stig í húfi hjá ÍBV á Hásteinsvelli
Íslandsmót golfklúbba í 2. deild karla hefst í Eyjum á morgun
Minna á lokanir við Viðlagafjöru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.