ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Hásteinsvelli
Úr leiknum í dag á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í fótbolta tók á móti Breiðablik í 2. umferð efri hluta Bestu deildar kvenna á Hásteinsvelli í dag. Eyjakonur komust yfir í fyrri hálfleik en Blikakonur sneru leiknum sér í hag eftir hlé og fögnuðu mikilvægum 1-2 sigri.

Fyrri hálfleikurinn var fremur bragðdaufur og lítið um opin marktækifæri. ÍBV var þó sterkari aðilinn og náði forystunni eftir tæplega 40 mínútna leik.

Eyjakonur fengu þá hornspyrnu sem Viktorija Zaicikova tók. Eftir klafs í vítateig Breiðabliks barst boltinn til Allison Patriciu Clark sem skoraði af öryggi og kom ÍBV í 1-0. Þannig stóðu leikar í hálfleik.

Blikakonur komu mun sterkari til leiks í síðari hálfleik og sóttu stíft að marki ÍBV. Þær fengu hvert færið á fætur öðru til að jafna metin en Guðný Geirsdóttir, markvörður ÍBV, átti stórleik. 

Á 69. mínútu fékk Breiðablik vítaspyrnu þegar Katelyn Duong var felld innan vítateigs ÍBV. Agla María Albertsdóttir steig á punktinn og skoraði af öryggi. Staðan því orðin 1-1.

Þegar rúmlega tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma fékk Breiðablik aukaspyrnu. Agla María Albertsdóttir tók spyrnuna og eftir mikinn darraðardans inni í vítateignum náði Bryndís Arna Níelsdóttir að koma boltanum yfir línuna og koma Blikum yfir. Það reyndist sigurmark leiksins. Lokatölur á Hásteinsvelli því 1-2, Breiðabliki í vil.

ÍBV er í þriðja sæti deildarinnar með 30 stig þegar þrjár umferðir eru eftir. Breiðablik er á toppnum með 43 stig en FH konur geta jafnað þær að stigum á morgun með sigri gegn Grindavík/Njarðvík.

ÍBV 1 – 2 Breiðablik

1-0 Allison Patricia Clark (’38 )

1-1 Agla María Albertsdóttir (’69 , víti)

1-2 Bryndís Arna Níelsdóttir (’79 )

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Hásteinsvelli
Fjölbreytt tómstundastarf kynnt í Íþróttamiðstöðinni
94 bjargdúfur felldar – aðgerðum ekki lokið
Nýjungar og verðlaun á sjávarútvegssýningunni – myndir frá IceFish
Toppliðið heimsækir Hásteinsvöll
Elís Þór framlengir við ÍBV til 2028
Tveir tapaðir mánuðir í upphafi sumars
Átta vilja verða tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.