ÍBV tapaði naumlega fyrir Aftureldingu

Bæði mörk gestanna komu í fyrri hálfleik. Hið fyrra kom eftir klaufaleg mistök í öftustu varnarlínu ÍBV og var það í eina skiptið sem einhver klaufagangur var sjáanlegur í varnarvinnu Eyjaliðsins. Síðara markið kom svo skömmu fyrir leikhlé og staðan því 0:2 í hálfleik.

Í síðari hálfleik voru Eyjastúlkur hreinlega sterkari framan af og hefðu með smá heppni getað skorað mark en vantaði þó herslumuninn. Jón �?lafur Daníelsson, þjálfari ÍBV var stoltur af sínu liði í leikslok og sagðist hafa átt von á stærra tapi en leikmenn liðsins hafi staðið sig afar vel í leiknum og lagt sig virkilega fram. Lið ÍBV var algjörlega skipað leikmönnum úr yngri flokkum félagsins, að mestu voru það leikmenn úr 2. og 3. flokki en þó var ein stúlka úr 4. flokki í byrjunarliði ÍBV.

�?ó liðið hafi tapað þessum leik má ljóst vera að leikurinn var aðeins eitt skrefið í átt til þess að tefla fram meistaraflokksliði í knattspyrnu að nýju og miðað við úrslit leiksins gæti er ekki langt að líða þar til að því gæti orðið.

Nýjustu fréttir

Það á að hrósa því sem vel er gert
Hádegismatur með fjölskyldunni forréttindi 
Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Líkamsrækt við Hástein skrefi nær – tveir sátu hjá
Spegilmyndir í morgunblíðunni
Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.