IKEA opnar í Friðarhöfn?

Óprúttinn aðili eða óprúttnir aðilar settu upp skilti við seiðastöðina í botni Friðarhafnar með áletruninni „hér opnar IKEA”. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru ekki áform hjá forsvarsmönnum seiðaeldisstöðvarinnar að opna IKEA verslun í botni Friðarhafnar og því um augljóst grín að ræða.

Samkvæmt öðrum heimildum fréttastofu þá hafa þeir óprúttnu sett upp skiltið í skjóli nætur og gætt þess vandlega að ekki myndi sjást til þeirra, ekki einu sinni bílljós.

Nýjustu fréttir

Fleiri sóttu um iðnnám en komust að í haust
Myndband sýnir varhugaverðar aðstæður við Ofanleitishamar
Styrkleikarnir snúa aftur í einfaldara formi
Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega við Ofanleitishamar
ESB setur hagsmuni Íslands ekki í fyrsta sæti
Leitað að nýju hundasvæði
Suðurland á mikið undir
Íslenskir diplómatar binda ekki Evrópudómstólinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.