Í kvöld fóru fram 8-liða úrslit í Símabikar kvenna. ÍBV átti tvö lið í keppninni, A- og B-lið en A-liðið sótti FH heim í Hafnarfjörðinn og vann 20:24. ÍBV er því komið í undanúrslit. B-lið ÍBV tók hins vegar á móti stórliði Fram í Eyjum. Eftir jafna fyrstu mínútu leiksins, þar sem ÍBV jafnaði 1:1, tóku Framarar öll völd á vellinum og voru yfir í hálfleik, 22:6. Lokatölur urðu 42:15 en Ingibjörg Jónsdóttir skoraði níu mörk fyrir ÍBV og sýndi að hún hefur engu gleymt.