Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu borstæði Eyjaganga
Árni Sigfússon, stjórnarformaður Eyjaganga sýnir Eyjólfi og Bergþóru borkjarnana á Eiðinu í dag. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu í dag borstæði Eyjaganga í Vestmannaeyjum ásamt fleiri fulltrúum frá innviðaráðuneytinu og Vegagerðinni.

Í færslu á vef Eyjaganga kemur fram að heimsóknin sé mikilvægur áfangi fyrir verkefnið og sýni þann áhuga og stuðning sem rannsóknir vegna fyrirhugaðra jarðganga til Vestmannaeyja njóti hjá stjórnvöldum og samgönguyfirvöldum.

Á borstæðinu fengu gestirnir kynningu á stöðu mála, tæknilegri útfærslu rannsóknanna og næstu skrefum verkefnisins. Þá fóru einnig fram umræður um framvindu verkefnisins og framtíðarsýn varðandi samgöngur til Vestmannaeyja.

Í færslunni segir jafnframt að slíkar heimsóknir séu mikilvægar fyrir framgang verkefnisins og stuðli að góðri samvinnu allra þeirra aðila sem að því koma.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og fulltrúar frá innviðaráðuneytinu og Vegagerðinni heimsóttu borstæði Eyjaganga í Vestmannaeyjum í dag.

Nýjustu fréttir

Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.