Ísfélagið með 2,8 milljarða króna hagnað á fyrsta ársfjórðungi
Stebbi.isfelagjpg
Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélagsins.

Ísfélag hf. skilaði 2,8 milljarða króna hagnaði eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins 2026 samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í dag. Góð loðnuvertíð, sterk aflabrögð og hátt verð á afurðum félagsins eru meðal helstu skýringa á góðri afkomu.

Rekstrartekjur félagsins námu rúmum 9 milljörðum króna á tímabilinu, samanborið við 4,6 milljarða á sama tíma í fyrra. EBITDA-framlegð var um 3,9 milljarðar króna eða 43,2% af rekstrartekjum.

Í tilkynningu félagsins kemur fram að uppsjávarafli skipa Ísfélagsins hafi verið um 33.600 tonn á fyrsta ársfjórðungi en bolfisk- og rækjuafli um 4.200 tonn. Þá voru framleidd rúm 13.300 tonn af frystum uppsjávarafurðum auk 5.600 tonna af mjöli og lýsi.

Rafvæðing í Eyjum og breytingar á flotanum

Í yfirlýsingu Stefáns Friðrikssonar forstjóra kemur fram að á þessu ári ljúki rafvæðingu fiskimjölsverksmiðju félagsins í Vestmannaeyjum. Hann segir mikilvægt að næg raforka verði tiltæk á sanngjörnu verði svo fjárfestingin skili sér í minni losun koltvísýrings.

Þá segir að breytingum á skiparekstri félagsins sé að mestu lokið. Uppsjávarskipið Suðurey og togarinn Ottó M. Þorláksson séu til sölu og að togskipið Jón á Hofi hafi verið selt og afhent nýjum eigendum í janúar.

Frystihúsum lokað tímabundið í sumar

Forstjórinn gagnrýnir jafnframt nýjan makrílsamning stjórnvalda harðlega og segir skerðingu á hlutdeild Íslands í makrílveiðum hafa veruleg áhrif á starfsemi félagsins. Afleiðingin verði sú að frystihús félagsins í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn verði lokuð í nokkrar vikur í sumar vegna verkefnaskorts. Slíkt hafi ekki gerst í rúma tvo áratugi.

Í uppgjörinu kemur einnig fram að loðnuvertíðin hafi staðið yfir í 41 dag og að hásetahlutur á Sigurði VE og Heimaey VE hafi verið á bilinu 8,7 til 8,9 milljónir króna á vertíðinni eftir leiðréttingar samkvæmt kjarasamningum.

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.