Í gærkvöldi voru íslensku sjávarútvegsverðlaunin 2014 afhent við athfön í Gerðasafni. Veitt voru verðlaun í mörgum flokkum en í flokknum framúrskarandi útgerð, hlaut Ísfélag Vestmannaeyja viðurkenningu fyrir að taka frumkvæði og endurnýja skipaflota sinn með nýsmiði tveggja glæsilegra uppsjávarskipa á skömmum tíma, eins og fram kemur á vef
Fiskifrétta.
Víðir Jónsson var valin í flokknum framúrskarandi fiskimaður, HB Grandi í flokknum framúrskarandi fiskvinnsla, Skinney-�?inganes fyrir framúrskarandi framlag til sjávarútvegs, Pólar toghlerar fyrir bestu nýjungina, Hampiðjan í flokknum framúrskarandi íslenskur framleiðandi – veiðar, Marel í flokknum Framúrskarandi íslenskur framleiðandi – fiskvinnslubúnaður og einnig fyrir framúrskarandi framleiðandi �??á heildina séð�?? eins og fram kemur í fréttinni. Auk þessa hlutu nokkur erlend framleiðslufyrirtæki verðlaun.