Íslandsmótið í golfi hefst á fimmtudaginn í Vestmannaeyjum
Golfvöllurinn er í flottur standi fyrir helgina. Mynd/golf.is

Íslandsmótið í golfi hefst á fimmtudaginn í Vestmannaeyjum. Mótið er hluti af Eimskipsmótaröðinni og keppendahópurinn er gríðarlega sterkur.

Keilismaðurinn Axel Bóasson, Íslandsmeistari 2017, mætir í titilvörnina ásamt fjölda annarra sterkra kylfinga. Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni er í verkefni erlendis á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu og tekur því ekki þátt að þessu sinni.

Alls eru 130 keppendur skráðir til leiks, 99 karlar og konurnar eru 31.

Frá árinu 2001 hafa konurnar aðeins einu sinni verið fleiri skráðar til leiks.  Árið 2014 kepptu 33 konur á Íslandsmótinu sem fram fór á Leirdalsvelli hjá GKG.

Íslandsmót í karlaflokki í golfi fór fram í fyrsta sinn árið 1942 og verður mótið í Vestmannaeyjum í ár það 77. í sögunni. Fyrstu fjögur árin var keppt í holukeppni á Íslandsmótinu en frá árinu 1946 hefur verið keppt í höggleik. Í kvennaflokki fór fyrsta Íslandsmótið fram árið 1967 og er keppt í kvennaflokki í 51. sinn.

Hægt er að lesa upplýsingar um mótið, keppendur og áhugaverðar staðreyndir um mótið hérna. 

Golf.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.