Ísleifur VE með fyrstu loðnuna til Eyja
Eyjólfur Guðjónsson og áhöfn hans á Ísleifi VE-63 komu með fyrsta loðnufarminn til Vestmannaeyja á vertíðinni, 250 tonn af fínum og átulausum fiski sem veiddist út af Hornafirði í gær.
�?að ríkir alltaf stemning og eftirvænting til sjós og lands þegar loðnuvertíð hefst. Vel mátti skynja spennu í lofti í nýju uppsjávarfrystihúsi Vinnslustöðvarinnar þegar sást til Ísleifs í morgunskímu og snjófjúki í innsiglingunni. Flókinn og margslunginn vél- og tæknibúnaður í flokkun og pökkun frystihússins skilaði því sem af honum var ætlast. Slíkt er ekki alveg sjálfgefið þegar mest á ríður. Mönnum létti þegar allt gekk eins og í sögu.
Fulltrúar japanskra kaupenda loðnuafurða komu til Eyja í gærkvöld og voru mættir á hafnarbakkann laust eftir rismál. �?eir deila frumsýningarstemningu með heimamönnum í dag.
www.vsv.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.