Ítreka kröfu um aukið fjármagn til hafna
„Verður ekki unað lengur við skerðingu á hafnarbótasjóði“
Frá framkvæmdum í Vestmannaeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyjabæjar tekur heilshugar undir áskoranir Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi (SASS) og Hafnasambands Íslands um aukið fjármagn til hafnaruppbyggingar og kallar eftir því að ríkið tryggi Vestmannaeyjahöfn nauðsynlegt fjármagn til að mæta framtíðaráskorunum.

Þetta kom fram á fundi ráðsins þar sem hafnarstjóri fór yfir samþykkt frá ársþingi SASS, sem haldið var á Kirkjubæjarklaustri í október. Þar var skorað á stjórnvöld að tvöfalda framlag í hafnarbótasjóð svo unnt sé að sinna uppbyggingu hafna og tengdra innviða.

Framlag lækkað um hundruð milljóna

Á fundinum var einnig vísað til ályktunar Hafnasambands Íslands, þar sem bent er á að fyrirliggjandi frumvarp til fjárlaga endurspegli engan veginn raunverulega fjárþörf hafna. Framlag í hafnarbótasjóð hefur lækkað hratt undanfarin ár:

  • 244 milljóna króna lækkun árin 2023–2026 (á verðlagi hvers árs).

  • Fyrirliggjandi áform gera ráð fyrir 248 milljóna króna lækkun til viðbótar á tímabilinu 2026–2030.

Í skýrslu Íslenska sjávarklasans kemur jafnframt fram að hafnarsjóðir, sem njóta framlags úr hafnarbótasjóði, hafi fjárfest fyrir um 15 milljarða króna á árunum 2020–2024 í viðhaldi og nýframkvæmdum. Næstu fimm ár er áætlað að fjárfestingaþörfin verði rúmlega 20 milljarðar, og fram til 2040 er þörfin metin á um 43 milljarða króna.

Vestmannaeyjahöfn verði tryggt fjármagn

Í bókun ráðsins segir að ekki verði lengur við það unað að framlög dragist saman á sama tíma og fjárfestingaþörf aukist.

„Ráðið ítrekar að hagsmunir Vestmannaeyjahafnar séu tryggðir með nauðsynlegu fjármagni frá ríkinu svo hægt sé að sinna þeirri innviðauppbyggingu sem framundan er.“

Nýjustu fréttir

ÍBV mætir FH í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Talning hefst upp úr klukkan 22 – fyrstu tölur um hálf ellefu
ÍBV stelpurnar unnu Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Gleðilegan kjördag kæru Vestmannaeyingar!
Við gefum loforð og efnum það
Lokahóf handboltans fór fram í gærkvöldi
Lengi lifi lýðræði á Íslandi!
Veljum reynsluna
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.