„Já til að sjá“ er feigðarflan
Óboðlegt að ganga til atkvæðagreiðslunnar 29. ágúst án skýrra og ófrávíkjanlegra markmiða í sjávarútvegs- og auðlindamálum
Valmundur: Í samtalinu við kollega okkar í Grænlandi og Færeyjum kom skýrt fram að þeir teldu það mikið óráð að feta þetta einstigi sem aðild að ESB er. Myndir Óskar Pétur.

Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, var meðal frummælenda á fundi Áfram Ísland í Golfskálanum í Vestmannaeyjum á laugardaginn. Valmundur er Eyjamönnum að góðu kunnur enda bjó hann lengi í Vestmannaeyjum og var um tíma formaður Sjómannafélagsins Jötuns. Hann var nýkominn heim frá Grænlandi þar sem hann sat fund Vestnorræna verkalýðsráðsins með forsvarsmönnum verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum. Umræður um fundinn settu töluverðan svip á erindi hans.

Valmundur hefur um áratugaskeið verið virkur í íslenskri verkalýðshreyfingu og tók við formennsku í Sjómannasambandi Íslands árið 2014. Strax í upphafi tók hann skýrt fram að hann talaði á fundinum sem einstaklingur en ekki fyrir hönd sambandsins. „Ég vil byrja á því að þakka boðið á þennan fund. Einnig vil ég taka skýrt fram að ég tala ekki hér sem formaður Sjómannasambands Íslands og lýsi ekki skoðunum þess.“

Hann sagði Sjómannasambandið hvorki hafa tekið né ætla að taka afstöðu til þeirrar spurningar sem kosið verður um 29. ágúst. Ef niðurstaðan yrði já og samningaviðræður leiddu síðar til samnings um inngöngu Íslands í ESB myndi sambandið hins vegar taka afstöðu til hans.

Nýkominn af fundi í Grænlandi

Valmundur kom heim frá Grænlandi í gær þar sem hann sat fund Vestnorræna verkalýðsráðsins, VN. Þar koma saman forsvarsmenn verkalýðsfélaga og sambanda á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum og bera saman bækur sínar um stöðu félagsmanna til sjós og lands.

Þjóðaratkvæðagreiðslan á Íslandi kom þar til umræðu. „Auðvitað bar atkvæðagreiðsluna þann 29. ágúst á góma. Ég tek fram að innan okkar raða í íslensku verkalýðshreyfingunni eru skiptar skoðanir um þessa atkvæðagreiðslu.“

Valmundur sagði afstöðu færeysku og grænlensku kollega sinna hafa vakið athygli sína. „Í samtalinu við kollega okkar í Grænlandi og Færeyjum kom skýrt fram að þeir teldu það mikið óráð að feta þetta einstigi sem aðild að ESB er.“

Færeyjar og Grænland utan ESB

Valmundur sagði Færeyinga sérstaklega ákveðna í afstöðu sinni. Færeyjar eru sjálfstjórnarsvæði innan danska ríkisins en standa utan ESB og EES og eru því ekki hluti af sameiginlegri sjávarútvegsstefnu sambandsins. Þær gera þess í stað eigin samninga um fiskveiðar og viðskipti. „Færeyingar frændur vorir fundu þessu flest til foráttu og sögðu það ekki vera af ástæðulausu að þeir stæðu utan við ESB.“

Grænland varð hins vegar hluti af þáverandi Evrópubandalagi með Danmörku en gekk úr því árið 1985. Það stendur nú utan ESB og sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu þess.

Valmundur sagði Grænlendinga ekki jafn harða í afstöðu sinni til ESB og Færeyinga og benti á fiskveiðisamninga þeirra við sambandið. Grænlendingar væru jafnframt að byggja upp eigin fiskiskipaflota og innviði.„Aðspurðir segja Grænlendingar að vonandi geti þeir sjálfir veitt þann afla sem ESB veiðir í þeirra lögsögu eftir 2030.“

Vestnorrænt bandalag?

Valmundur gerði einnig að umtalsefni hugmynd Jans Højgaard, formanns Føroya Fiskimannafelags, um nánara samstarf Íslands, Færeyja og Grænlands. Hugmyndin gengur út á að löndin þrjú stofni með sér vestnorrænt efnahagsbandalag, VNB, og jafnvel að Norðmönnum yrði boðin þátttaka. „Með þekkingar- og auðlindaauði þessara þjóða væri VNB, vestnorræna bandalagið, það stórt að ESB gæti ekki annað en tekið mark á okkur.“

Valmundur tók vel í hugmyndina þótt hann viðurkenndi að ýmsar hindranir væru á þeirri leið. „Mér líst vel á þessa hugmynd Jans Højgaard þó auðvitað séu mörg ljón á þeim vegi.“

„Já til að sjá“ ekki nóg

Valmundur beindi síðan sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Hann sagði það valda sér mestum áhyggjum að skýr og afdráttarlaus samningsmarkmið Íslands í sjávarútvegs- og auðlindamálum lægju ekki fyrir.

„Það sem mér finnst óþægilegt og óskýrt við þessa atkvæðagreiðslu er að samningsmarkmið okkar í fiskveiði- og öðrum auðlindamálum liggja ekki fyrir, engin skilgreining er fyrir hendi.“

Hann sagði að í sínum huga þyrfti að vera hafið yfir allan vafa að Íslendingar gæfu engan afslátt af yfirráðum yfir eigin auðlindum. „Í mínum huga þarf að liggja fyrir afdráttarlaust að enginn afsláttur verði gefinn á að auðlindir Íslendinga verði áfram í okkar eigu. Já til að sjá, án yfirlýstra og ófrávíkjanlegra markmiða, finnst mér feigðarflan og algerlega óboðlegt.“

„Þvílíkur aulagangur“

Valmundur gagnrýndi einnig harðlega að atkvæðagreiðslan væri ráðgefandi en ekki bindandi og taldi það geta viðhaldið deilunni um ESB-aðild, óháð niðurstöðunni. „Svo einhvers staðar á þessari vegferð var laumað í textann að atkvæðagreiðslan sé ráðgefandi! Þvílíkur aulagangur er þetta. Með þessu er verið að tryggja áframhaldandi úlfúð og klofning meðal þjóðarinnar hvernig sem fer.“

Hann spurði hvort ekki hefði verið farsælla að reyna að ná breiðari sátt með skýrum markmiðum og bindandi atkvæðagreiðslu.

 

Svavar og Bragi Steingrímssynir voru meðal um 90 fundargesta.

 

Staða verkafólks og sjómanna

Valmundur vék einnig að verkalýðsmálum og sagði stöðu verkafólks og sjómanna hafa versnað í ýmsum ríkjum ESB. Nefndi hann sérstaklega stöðu sjómanna og starfsfólks í fiskiðnaði á Írlandi.

Hann sagði íslensku verkalýðshreyfinguna hafa byggt upp öflugt kerfi utan um félagsmenn sína með meðal annars sjúkrasjóðum, orlofskerfi, lögfræðiaðstoð og annarri þjónustu. Þótt íslenska vinnumarkaðsmódelið væri ekki gallalaust hefði það að hans mati skilað sterkri stöðu launafólks og háum kaupmætti.

Krónan, evran og verðtryggingin

Verðbólga og gjaldmiðilsmál komu einnig til umræðu. Valmundur sagði marga kenna krónunni um þráláta verðbólgu en taldi óljóst hvað fælist í hugsanlegum viðræðum við ESB þegar kæmi að gjaldmiðlinum.

„Við búum við mikla og þráláta verðbólgu og margir kenna krónunni um. En verður samið um krónu, evru eða verðtryggingu ef farið verður af stað í viðræður? Ekki hef ég séð það neins staðar.“

 

Maggi Kristins, Binni í Vinnslustöðinni og Helgi Bernódusson létu sig ekki vanta.

 

„Stofnum vestnorræna bandalagið“

Í lok erindisins sneri Valmundur aftur að hugmynd Jans Højgaard um sérstakt vestnorrænt bandalag. „Stofnum vestnorræna bandalagið, VNB. Stýrum öllum okkar gjöfulu auðlindum sjálf án þeirrar utanaðkomandi risaeðlu sem ESB er, sem öllu vill ráða með tilskipunum og lagabálkum sem henta þeim en ekki okkur.“

Að lokum hvatti Valmundur fundargesti til að kynna sér erindi Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, sem hún flutti á fundi Áfram Ísland í Hofi á Akureyri. Sagði hann þar hafa komið fram gagnleg rök í umræðunni um sjálfstæði, fullveldi og baráttu verkalýðshreyfingarinnar.

„Höfum það þannig áfram. Kærar þakkir fyrir áheyrnina, góðar stundir,“ sagði Valmundur að lokum.

 

Nýjustu fréttir

„Já til að sjá“ er feigðarflan
Heimaey úr lofti á fallegum ágústdegi
Tap hjá ÍBV í Keflavík
Raunverulegt sjálfstæði
Sjávarútvegurinn er tilvistarspurning fyrir Ísland
Karlalið ÍBV sigurvegari á Ragnarsmótinu á Selfossi
Upptökumannvirki Vestmannaeyjahafnar lokað tímabundið
Mikilvæg stig í húfi hjá Eyjamönnum í Keflavík
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.