Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Heimir Hallgrímsson.

Írland, undir stjórn Eyjamannsins Heimis Hallgrímssonar, gerði 1-1 jafntefli við Ísrael í B-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta í kvöld. Leikurinn fór fram á hlutlausum velli í Serbíu að ósk Íra og var spilaður fyrir luktum dyrum.

Talsvert fjaðrafok hefur verið í kringum viðureignir þjóðanna og mikil umræða hefur verið um þátttöku Ísraels í keppninni. Mótmæli og auknar öryggisráðstafanir settu svip sinn á umgjörð leikjanna.

Troy Parrott kom Írum yfir á 39. mínútu leiksins þegar hann skoraði úr vítaspyrnu. Ísrael jafnaði metin snemma í síðari hálfleik þegar boltinn barst til Dor Peretz inni í vítateignum og hann skoraði af stuttu færi. Ekki voru fleiri mörk skoruð og því niðurstaðan 1-1 jafntefli.

Jafnteflið kom eftir krefjandi og annasaman landsleikjaglugga hjá Írum. Þeir töpuðu 1-0 fyrir Kósovó, unnu síðan Ísrael 3-0 og gerðu 2-2 jafntefli við Austurríki áður en þeir mættu Ísrael á ný í kvöld.

Írar eru því með fimm stig, líkt og Kósovó, eftir fjóra leiki og sitja í þriðja sæti í riðli 3. Austurríki er á toppi riðilsins með átta stig en Ísrael situr á botninum með tvö stig.

Nýjustu fréttir

Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Erlingur stýrði Minden til sigurs í sínum fyrsta leik
Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
ÍBV tapaði stórt gegn FH í Kaplakrika
Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.