Sæunn Magnúsdóttir, kjörinn fulltrúi Miðflokksins í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að stíga tímabundið til hliðar sem bæjarfulltrúi Miðflokksins á meðan hún gegnir embætti sýslumanns í Vestmannaeyjum.
Sæunn var sett tímabundið í embættið þann 22. ágúst síðastliðinn og gildir setningin til áramóta.
Í tilkynningu frá Miðflokknum í Vestmannaeyjum kemur fram að ákvörðun Sæunnar sé talin rétt í stöðunni og eðlilegt sé að hlutverkin séu skýr á meðan hún gegnir embættinu.
Jóhann Ingi Óskarsson er næsti varamaður flokksins og mun taka sæti Sæunnar á meðan. Í tilkynningunni segir að fullt traust sé borið til Jóhanns Inga og þess að hann muni sinna hlutverki sínu af ábyrgð og metnaði.
Þá segir að innan Miðflokksins í Vestmannaeyjum hafi frá upphafi verið lögð rík áhersla á gott samstarf, gagnkvæmt traust og sterka liðsheild. Flokkurinn sé fullviss um að verkefnin verði áfram í góðum höndum.