Jól í skókassa farið af stað á nýjan leik
Mynd: KFUM&K

Jól í skókassa, verkefni KFUM og KFUK á Íslandi, sem hefur hlotið mikinn stuðning og notið mikillar velgengni undanfarin ár er aftur farið af stað. Verkefnið snýst um að setja litlar og einfaldar gjafir í skókassa sem síðan eru sendir til munaðarlausra og fátækra barna í Úkraínu.

Tekið er á móti kössum í Landakirkju sem og hjá Flytjanda niðri við Friðarhöfn, en Eimskip og Flytjandi eru á meðal styrktaraðila að verkefninu. Síðasti skiladagur skókassa í Vestmannaeyjum er föstudagurinn 1. nóvember nk.

Mikilvægt er að fara vel eftir leiðbeiningum varðandi hvað má fara í kassana og hvernig ganga eigi frá þeim. Allar upplýsingar um slíkt ásamt prentefni til merkinga er að finna á heimasíðu verkefnisins kfum.is/skokassar

Nýjustu fréttir

Íslenskir diplómatar binda ekki Evrópudómstólinn
Miðasala hafin á Lundaballið
ÍBV og Macron í samstarf
Nýtt skólaár hafið hjá Grunnskóla Vestmannaeyja
Fimm ástæður fyrir JÁ-inu mínu
Stefnir í stærsta ágústmánuðinn í botnfiskvinnslu í langan tíma
Skólasetning GRV fór fram í morgun
Rúmlega tíundi hver hefur kosið utan kjörfundar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.