Jólablað Fylkis er komið út
Fylkir Fors 2024

Jólablaði Fylkis 2024 var dreift í hús innanbæjar nú um helgina 13.-14. . desember og sent víðsvegar um land. JólaFylkir er að þessu sinni 44 bls.  sem er stærsta og efnismesta Jólablað Fylkis frá upphafi útgáfu 1949.

Meðal efnis í blaðinu er jólahugvekja Sunnu Dóru Möller prests við Landakirkju í leyfi séra Viðars.  Grein Ívars Atlasonar en nú eru liðin 50 ár frá því fyrsta húsið í Eyjum var tengt hraunhitaveitu.  Kári Bjarnason skrifar um eigendasögu Vestmannaeyja, en samantekt Kára skipti miklu fyrir hagsmuni Eyjanna í samskiptum við óbyggðanefnd. Viðtal Ómars Garðarssonar við Sigurgeir Jónasson í Skuld og  viðtal Ásmundar Friðrikssonar við Sjöfn K. Benónýsdóttur – Bobbu í Gröf. Í þættinum Hús og fólk fjallar Eiríkur Þ. Einarsson um Hof við Landagötu og íbúa þesss ,en húsið  fór undir hraun í lok mars 1973.  Í burðargrein blaðsins fjallar Helgi Bernódusson um hið hörmulega sjóslys sem varð norðan við Eiðið  16. desember 1924, fyrir réttum 100 árum.  Þá er grein um lífshlaup Haraldar Bjarnfreðssonar  og Bisp slysið eftir Jón Helgason frá Seglbúðum  og Helga Bernódusson. Loks þátturinn Látnir kvaddir um fólk sem búið hefur í Eyjum í lengri eða skemmri tíma  á lífsleiðinni og látist hefur á árinu.

Jólablað Fylkis  verður í heild á eyjafrettir.is og verður þar aðgengilegt  út janúar 2025.  Uppsetning  JólaFylkis  var í höndum Sæþórs Vídó Þorbjarnarsonar í Leturstofunni og prentvinnsla hjá Landsprent . Ritstjóri jólablaðs Fylkis er Arnar Sigurmundsson og ábm. er Eyþór Harðarson.

Hér má skoða blaðið.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.