Jólahlaðborð & tónleikar í Höllinni - myndir
Um síðustu helgi mættu um 180 manns í Höllina á árlegt jólahlaðborð og tónleika. Einsi Kaldi og hans fólk sá um matseldina, hlaðborðið var hið glæsilegasta og úrvalið hvert öðru betra ef út í það er farið. Forréttir, kaldir réttir, heitir réttir og eftirréttir, eitthvað fyrir alla og flestir lögðu í þrjár ferðir að borðinu. �?að má áætla að ekki nokkur maður hafi farið svangur heim eftir þessa veislu.
Um klukkan tíu hófust svo jólatónleikarnir þar sem Helga Möller, Pálmi Gunnarsson, María �?lafsdóttir, okkar eina sanna Sara Renee og síðastur á svið var �?órhallur Sigurðsson eða Laddi eins og við þekkjum hann öll og alltaf þegar hann stígur á svið hefjast hlátrasköllin.
Helga, Pálmi og Laddi fluttu þau jólalög sem frá þeim hafa komið í gegnum tíðina. María og Sara þöndu raddböndin með heimsfrægum jólalögum sem allir þekkja og gerðu það lista vel.
Myndir

Nýjustu fréttir

Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.