Jólasveinaklúbbur bókasafnsins fer af stað
Það var mikið fjör á lokadegi bókaklúbbsins í fyrra.

Í þriðja sinn mun Bókasafn Vestmannaeyja bjóða upp á Jólasveinaklúbb. Bókafjörið hefst á morgun og stendur til 19. desember. Á þessum tíma geta börn frá leikskólaaldri og upp í 4. bekk Grunnskólans gengið í Jólasveinaklúbb Bókasafns Vestmannaeyja.

Þátttakendur velja sér jólabók/jólabækur á Bóka­safninu og lesa að minnsta kosti 10 sinnum, í að lágmarki 10 mínútur í hvert sinn. Fyrir yngri börnin mega foreldrarnir lesa bækurnar. Þau sem eiga jólasveinaskírteini geta notað þau en þau sem eru ný í klúbbnum fá jólasveinaskírteini við skráningu í klúbbinn. Ef þau sem hafa tekið þátt áður hafa týnt skírteininu sínu geta þau að sjálfsögðu fengið nýtt.  Allir fá „lestrarhest“ við skráningu sem fylltur er út og skilað inn á safnið í síðasta lagi 19. desember. Þau sem skila inn útfylltum lestrahesti fá glaðning frá Bókasafninu.

20. desember er öllum börnum frá leikskólaaldri og upp í 4. bekk boðið til jólaveislu á Bókasafninu og það er aldrei að vita nema að jólasveinn kíki í heimsókn. Nánar auglýst síðar.

Nýjustu fréttir

Baldur flutti nærri ársfjölda Breiðafjarðar á 45 dögum
Þessi föstudagur á Þjóðhátíð
Vörubakarí opnaði í morgun
Herjólfur III í haffærisskoðun um mánaðamótin – dýpkun hefst í byrjun ágúst
Hafnaði nær öllum verkefnum í júlí til að undirbúa Brekkusönginn
Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
„Við erum orðin skuldlaus“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.