Jón Ólafur aftur til ÍBV
jon-oli-ibvsport_24
Jón Ólafur Daníelsson. Ljósmynd/ibvsport.is

ÍBV hefur ráðið Jón Ólaf Daníelsson til starfa hjá félaginu og mun samningurinn ná til 5 ára. Jón Óli mun taka við þjálfun meistaraflokks kvenna í fótbolta ásamt því að vera í þjálfarateymi Hermanns Hreiðarssonar í meistaraflokki karla. Þá hefur unglingaráð ÍBV einnig gert samning við Jón Óla um yfirþjálfun yngri flokka félagsins í fótbolta.

Jón Óli er öllum hnútum kunnugur hjá félaginu en hann þjálfaði mfl. kvk 2007-2014 og svo aftur 2019 ásamt því að hafa verið yfirþjálfari félagsins, segir í frétt á heimasíðu félagsins þar sem Jón Óli er boðinn velkominn til starfa og honum óskað velfarnaðar í starfi.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.