Jonathan Glenn ekki með ÍBV í næstu leikjum
Jonathan Glenn, markahæsti leikmaður ÍBV í Pepsi-deild karla, verður ekki með Eyjaliðinu í næstu leikjum því hann er að fara að keppa með landsliði sínu Trínidad og Tóbagó. �?etta kom fram í Pepsi-mörkunum í kvöld.
Jonathan Glenn er kominn í gang eftir rólega byrjun en hann hefur skorað í fjórum af síðustu fimm leikjum ÍBV í Pepsi-deildinni.
Glenn er í hópi Trínidad og Tóbagó í Gullbikarnum sem er álfukeppni þjóða í Norður- og Mið-Ameríku og fer fram í Bandaríkjunum og Kanada frá 7. til 26. júlí.
Trínidad og Tóbagó er í riðli með Mexíkó, Gvatemala og Kúbu og er fyrsti leikur liðsins á móti Gvatemala 9. júlí næstkomandi. Leikur liðsins eru 9., 12. og 15. júlí. Komist liðið upp úr riðlinum lengist dvöl Glenn vestan hafs.
Eyjamenn eiga bikarleik á móti Fylki í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins þann 4. júlí og svo deildarleik gegn ÍA 12. júlí. Eyjamenn mæta síðan Fjölni 19. júlí en þá gæti Glenn verið kominn til baka

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
„Við erum orðin skuldlaus“
Vinnslustöðin styrkir stöðu sína í Portúgal
Herjólfur aftur í fulla áætlun á morgun
Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.