Kafbátarnir á góðri siglingu
Ferð kafbátanna hefur gengið vel og nú styttist í ákvörðunarstað.

Vestmannaeyjar voru í júní miðstöð umfangsmikilla rannsókna í hafinu suður af Eyjum. Notaðir eru tveir  fjarstýrðir kafbátar hlaðnir hátæknibúnaði  sem taka margskonar sýni úr sjónum og greina þau um leið. Héðan héldu þeir 16. júní til móts við breskt rannsóknaskip þaðan sem þeir lögðu upp í leiðangur suður eftir Atlantshafinu. Leiðangrinum lýkur á Harriseyju í Skotlandi og þá hafa bátarnir lagt 3000 km að baki á einni og sömu rafhlöðunni. Ferð bátanna gengur vel og eru þeir komnir vel áleiðis eins og myndin sýnir

 

„Þetta hefur verið í deiglunni í tvö ár en upphafið var að Breska hafrannsóknarstofnunin hafið samband við Háskóla Íslands sem vísaði á Vestmannaeyjar. Bretarnir töluðu svo við okkur,“ sagði Hörður Baldvinsson, framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja. „Ég sagði að Vestmannaeyjar væru langsbesti staðurinn, öflugt bæjarfélag við andyri alls Norður Atlantshafsins. Mikil tækniþekking og reynsla til staðar og á hverju strái eldklárir rafvirkjar og tæknimenn. Alltaf til þjónustu reiðubúnir komi eitthvað upp á. Ég sendi þeim skýrslu og síðasta haust komu Ed Chaney og Peter Lambert frá Bretlandi og leist vel á. Bátarnir eru komnir og farnir og þeim fylgdu fimm vísindamenn til að setja bátana saman og sjá um að allt væri í lagi.“

 

Nýjustu fréttir

Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.