Kanna möguleika á að koma fyrir föstum dælubúnaði í hafnarmynni Landeyjahafnar

Staðan í Landeyjahöfn var til umræðu á fundi bæjarráðs í gær. Bæjarráð ræddi fund bæjarfulltrúa með forsvarsfólki Vegagerðarinnar um stöðu Landeyjahafnar, sem var haldinn þann 10. febrúar sl. Rætt var um dýpkunina, útboð á dýpkun í vor og úttekt á höfninni sem þarf að ljúka sem fyrst. Þá var upplýst um að Vegagerðin vinni áfram að því að kanna möguleika á að koma fyrir föstum dælubúnaði í hafnarmynni Landeyjahafnar. Samkvæmt fulltrúa Vegagerðarinnar hefði sú tegund búnaðar, sem frestað var að setja upp, ekki komið að notum í janúarmánuði, þar sem vindhraði og ölduhæð þurfa að vera mjög hagstæð til að nota búnaðinn. Enginn dagur í janúar uppfyllti hvort tveggja.

Bæjarráð þakkar í niðurstöðu sinni Vegagerðinni fyrir fundinn og lýsir ánægju með að nú verði gerðar auknar kröfur um afköst og tæknilega getu við útboð á dýpkun landeyjahafnar í vor, líkt og bæjaryfirvöld hafa farið fram á í langan tíma, þ.e. að öflugt dýpkunarskip sinni dýpkuninni. Mikilvægt er að áfram verði gert ráð fyrir að veita vetrarþjónustu á dýpkun, enda var mikil framför þegar dýpkunartímabilum var eytt út árið 2019. Þá lýsir bæjarráð ánægju með að samhliða öflugra dýpkunarskipi verði áfram unnið að frekari lausn varðandi fastan dælubúnað. Mikilvægt er að allra mögulegra leiða sé leitað til að fækka þeim dögum sem Landeyjahöfn er lokuð og bæta þannig samgöngur við Vestmannaeyjar.

Nýjustu fréttir

Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.