Kári í 19 manna hópi
Kári og Elliði

Guðmundur Guðmundsson tilkynnti í dag 19 manna leikmannahóp sinn fyrir Evrópumótið í handbolta í janúar. Hópurinn verður skorinn niður um þrjá leikmenn fyrir fyrsta leik. Fjórir línumenn eru í höpnum og líklegt má teljast að fækkað verði í þeirri stöðu fyrir mót. Kristján Örn Kristjánsson og Elliði Snær viðarsson voru ásamt Kára í 28 mann hópi en það er sá hópur sem Guðmundur getur alltaf kallað inn á meðan á mótinu stendur. Evrópumótið hefst í Svíþjóð, Noregi og Austurríki þann 9. janúar næstkomandi. Fyrsti leikur Íslands er gegn Danmörku þann 11. janúar.

Hópur Íslands er svona (leikja- og markafjöldi í sviga):

Markverðir:
Viktor Gísli Hallgrímsson (9/0)
Ágúst Elí Björgvinsson (31/0)
Björgvin Páll Gústavsson (211/13)

Vinstra horn:
Guðjón Valur Sigurðsson (356/1.853)
Bjarki Már Elísson (63/141)

Vinstri skytta:
Ólafur Andrés Guðmundsson (115/217)
Aron Pálmarsson (141/553)

Miðjumenn:
Elvar Örn Jónsson (26/80)
Janus Daði Smárason (37/41)
Haukur Þrastarson (12/15)

Hægri skyttur:
Alexander Petersson (174/418)
Viggó Kristjánsson (2/3)

Hægra horn:
Arnór Þór Gunnarsson (105/311)
Sigvaldi Guðjónsson (20/37)

Línumenn:
Kári Kristján Kristjánsson (137/162)
Arnar Freyr Arnarsson (45/65)
Sveinn Jóhannsson (7/14)
Ýmir Örn Gíslason (33/14)

Varnarmaður:
Daníel Þór Ingason (30/9)

Nýjustu fréttir

Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.