Karl Gauti: Verja þarf hagsmuni Eyjamanna við kjötkatlana í Reykjavík
�?g hef ákveðið að bjóða fram krafta mína á alþingi okkar Íslendinga og brenn í skinninu til að fá að takast á við öll þau fjölmörgu verkefni sem þar þarf að vinna að. Margt mætti auðvitað nefna en það sem snýr að Eyjamönnum er klárlega helst samgöngur og heilbrigðisþjónusta.
Samgöngumálin eru efst á baugi hér og svo var einnig öll þau 16 ár sem ég bjó í Eyjum. Ágætar hugmyndir um jarðgangnagerð upp á land voru slegnar út af borðinu þegar ákveðið var að gera Landeyjahöfn. Allt frá upphafi var ljóst að höfnin var gerð af vanefnum en væntingarnar voru svo miklar að ég man að ég kvaddi �?orlákshöfn sumarið 2010 og hélt ég kæmi þar varla aftur, en sú varð nú heldur betur ekki raunin. Fljótt kom í ljós að höfnin uppfyllti engar þær væntingar sem gerðar voru til hennar og svo hefur verið allar götur síðan. Embættismenn hafa verið á hraðaflótta með væntingarnar og fundið sífellt upp nýjar ástæður til fyrirsláttar. Tala þarf tæpitungulaust um vandamálið og klára höfnina sem allra fyrst, lengja hafnargarðana svo höfnin þjóni byggðarlaginu og gestum þess eins og til stóð í upphafi. �?etta má ekki draga það lengur.
Heilbrigðisþjónustunni í Eyjum hefur hrakað á undanförnum árum. �?g tel að nauðsynlegt sé að skurðstofan sé opin í Vestmannaeyjum og þar geti mæður fætt börn sín. Fyrir þessu mun ég berjast með kjafti og klóm. Hvers vegna ætti ekki að vera hægt að halda þessu úti núna ef það var unnt fyrir áratug síðan?
Núna mitt í allri hagsældinni og hagvextinum? Ýmsar lausnir væri unnt að hugsa sér varðandi skurðstofuþjónustu í Vestmannaeyjum, td. væri hægt að bjóða upp á sérhæfðari aðgerðir fyrir allt landið í Eyjum og afla skurðstofunni þannig verkefna.
�?að er ekki aðeins samgöngumál og heilbrigðismál sem brenna á Eyjamönnum, heldur hafa ýmsar stofnanir ríkisins í Vestmannaeyjum mátt þola mikinn niðurskurð á umliðnum árum og eru jafnvel skornar niður meira en sambærilegar stofnanir í kringum höfuðborgarsvæðið. �?etta verður að leiðrétta og það er kominn tími til að fjárveitingar til stofnana í Eyjum séu í takt við þörfina. Hér á ég ekki bara við heilbrigðisþjónustuna, heldur einnig lögreglu, sýslumannsembættið og Framhaldsskólann. �?g mun vinna að því af krafti að berjast fyrir hagsmunum Eyjamanna.
Ágætu Eyjamenn! �?g held að það sé mikil þörf á að frambjóðendur Flokks fólksins komist í ræðustól alþingis, þennan mikilvægasta ræðustól landsins og láta í sér heyra varðandi þau þjóðþrifamál sem flokkurinn berst fyrir.
Í kosningabaráttunni hafa hinir flokkarnir stokkið á okkar vagn og boðað stefnu sem við höfum barist fyrir. Bara eitt dæmi er frítekjumarkið. Nú vilja allir Lilju kveðið hafa. Fyrir ári síðan ætluðu allir þessir flokkar sem þá voru á þingi og þá eru Píratar ekki undanskildir að setja frítekjumarkið í 0 kr., en fyrir þrýsting samtaka aldraðra var það fært náðarsamlegast í 25.000 kr. Flokkur fólksins tók þá strax upp baráttu fyrir því að leyfa öldruðum og lífeyrisþegum að vinna með okkur án þess að bætur þeirra skertust króna á móti krónu og borga skatta af sínum launum. Núna vilja þessir sömu flokkar allir sem einn hækka frítekjumarkið og jafnvel afnema. Og jafnvel þó unnt sé að gleðjast yfir svona stefnubreytingu 180°, þá spyr maður sig : Hver er trúverðugleikinn ?

Nýjustu fréttir

Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Páskafundur í safnaðarheimili Landakirkju
ÍBV semur við leikmann frá Portúgal
Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga létu til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.