Karlakórinn þakkar fyrir sig
Nú þegar að úrslit í sjónvarpsþáttunum Kórar Íslands eru ljós með sigri Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps eru okkur í Karlakór Vestmannaeyja þakklæti efst í huga um leið og við óskum sigurvegurunum innilega til hamingju.
�?átttaka Karlakórs Vestmannaeyja í þáttunum kostuðu kórinn, kórmeðlimi, stjórnanda, stjórn og undirleikara gríðarmikla vinnu og fjármuni sem hefði verið til einskis ef bakland kórsins á heimavelli, hér í Vestmannaeyjum væri ekki jafn ótrúlegt og sterkt eins og það er. Hér í Eyjum hafa fjölmargir einstaklingar og fyrirtæki ásamt bæjarfélaginu stutt við kórinn með styrkjum og gjöfum, sem og að kjósa okkur í þáttunum og er það algjörlega ómetanlegt og viljum við í kórnum þakka það innilega. Hagnaður kórsins af þátttökunni er mikill ,þó hann sé ekki metinn í fjármunum, heldur frekar í reynslu og bættum vinnubrögðum, og sýnir um leið hvað við erum vel í stakk búnir til að koma fram og skemmta okkur og öðrum eftir ekki lengri starfstíma, en kórinn var endurstofnaður á vormánuðum árið 2015 og er því rétt rúmlega tveggja ára í þessari mynd. Einnig sýnir þessi mikli stuðningur samheldni okkar Eyjamanna og má hún vera öðrum til eftirbreytni. Hún er okkur í kórnum mikil hvatning til að gera meira og betur í framtíðinni. Kærar hugheilar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning kæru Vestmannaeyingar og aðrir velunnarar Karlakórs Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.