Alltaf 18 ára

Ágúst Halldórsson, var kosinn kennari ársins af nemendum FÍV. Hann er vélfræðingur með meiru sem fór inn á nýja braut eftir að hafa verið vélstjóri á loðnuskipum og síðast Herjólfi. 

„Maður renndi nú heldur betur blint í sjóinn þegar maður ákvað að slá til og verða kennari á vélstjórnarbraut við Framhaldsskólann  í Vestmannaeyjum síðasta haust. Hvað þá að feta í fótspor Gísla Eiríkssonar,“ segir Ágúst um starfið. 

Hann segir það skrýtna tilfinningu að kenna við sama skóla og hann hafi sjálfur lært við. „Ég er reyndar það skrýtinn að mér finnst ég alltaf vera átján ára. Og stundum leið mér eins og ég væri nemandi, hefði svindlað mér inn á kennarastofuna. Fór fram og niður í sal að hanga með krökkunum og spila við þau borðtennis. Oft og iðulega rústa þeim og hlæja svo á eftir.“

Nánar er rætt við Ágúst í grein sem birtist í næsta blaði Eyjafrétta. Blaðið kemur út á morgun, 8. júní. Nálgast má blaðið í lausasölu hjá Krónunni, Klettinum og Tvistinum.

Nýjustu fréttir

Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.