KFS byrjar á stórsigri á útivelli
KFS lék fyrsta leik sinn í Íslandsmótinu í dag þegar liðið sótti Ísbjörninn heim en leikurinn fór fram á Gervigrasinu í Kórnum. Liðin leika, ásamt sex öðrum í B-riðli 4. deildar en lokatölur í leiknum urðu 1:4 fyrir KFS eftir að staðan í hálfleik hafði verið 0:2. Gauti �?orvarðarson, Jóhann Ingi �?órðarson, Tryggvi Guðmundsson og Ingólfur Einisson komu KFS í 0:4 en heimamenn minnkuðu muninn í uppbótartíma. �?etta var fyrsti leikur liðanna en lið KFS hefur fengið góðan liðsstyrk undanfarnar vikur en Tryggvi Guðmundsson, Sverrir Garðarsson og Sigurvin �?lafsson hafa allir skipt yfir í KFS. Tryggvi og Sverrir spiluðu í dag en Sigurvin var ekki í leikmannahópi KFS í þetta sinn.
�??Áttum talsvert af færum, varið á línu, sleppt víti, löglegt mark dæmt af okkur, en ég er mjög sáttur við þennan leik, leystum erfitt verkefni vel, með nokkra laskaða leikmenn og nokkur forföll,�?? skrifar Hjalti Kristjánsson, þjálfari KFS á heimasíðu félagsins.
Næsti leikur KFS fer svo fram á Helgafellsvelli næstkomandi fimmtudag þegar liðið tekur á móti Stokkseyri klukkan 14:00.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.