Leik KFS og Ægis frá Þorlákshöfn hefur verið frestað til morguns, laugardag. Verður leikurinn kl. 10.30 á Týsvelli. – Til stóð að Ægismenn kæmu siglandi frá Land-Eyjahöfn, er ekki viðrar til siglinga lítilla báta úr höfninni, og því komast þeir ekki til leiks.