Kiwanis gefur nýjan fíkniefna-hund

Í dag afhentu fulltrúar Kiwanis Vestmannaeyjum embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum nýjan fíkniefna-hund að gjöf. Hundurinn hefur hlotið hefur nafnið Móa, þetta er fjórði hundurinn sem klúbburinn gefur til embættisins. “Við erum stoltir af því að geta gert samfélaginu gagn og gefið til baka þar sem styrkurinn er veittur af söfnunarfé og þá aðallega með sölu jólasælgætis til bæjarbúa,” segir í tilkynningu í frá Kiwanis. Í fjárhæðinni er allur kostnaður við hundinn.

Þjálfun stendur yfir við að kenna leit að fíkniefnum undir dyggri leiðsögn Heiðars Hinrikssonar lögreglumanns. Fyrst eftir að hún kom fór tíminn í að venja hana að nýju heimili og fólki, umhverfisþjálfa hana og kenna henni íslensku. Móa er kraftmikill hvolpur og hefur Heiðar trú á að hún verði öflugur leitarhundur.

Nýjustu fréttir

Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu borstæði Eyjaganga
Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært
Högum okkur
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku
Nei, það er ekki glæpur
Nethamar hætt starfsemi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.