Kjarnaborun að hefjast á Landeyjasandi
default
Kjarnaborinn Karl Prins er nú kominn á sinn stað á Landeyjasandi þar sem undirbúningur fyrir rannsóknarholuna EG-02 er á lokastigi. Ljósmynd/Aðsend.

Undirbúningi fyrir næstu rannsóknarholu Eyjaganga á Landeyjasandi er nú lokið og stendur til að hefja bæði fóðrun og kjarnaborun á næstu dögum. Þetta kemur fram í nýrri frétt á vef Eyjaganga.

Rannsóknarholan, sem ber heitið EG-02, er hluti af umfangsmiklum jarðfræðirannsóknum sem ætlað er að varpa ljósi á hvort raunhæft sé að ráðast í gerð jarðganga milli lands og Vestmannaeyja.

Fyrst sett niður 40 metra löng fóðrun

Vegna aðstæðna á Landeyjasandi, þar sem efstu jarðlögin eru að mestu laus sandur, verður fyrsta skrefið að setja niður um 40 metra langa fóðrun sem á að tryggja stöðugleika borholunnar áður en borað verður dýpra niður í berggrunninn.

Að því loknu tekur við sjálf kjarnaborunin, en gert er ráð fyrir að holan verði boruð niður á allt að 300 metra dýpi.

Mikilvæg gögn fyrir mat á göngum

Markmið borunarinnar er að ná upp samfelldum kjarnasýnum úr jarðlögunum undir sandinum. Slík sýni gefa vísindamönnum og verkfræðingum mikilvægar upplýsingar um gerð, styrk og eiginleika berglaganna á svæðinu. Fram kemur að slíkar rannsóknir séu lykilforsenda þess að hægt sé að meta fýsileika jarðgangagerðar, hanna örugg göng og áætla kostnað við verkefnið.

Í fréttinni er haft eftir Haraldi Pálssyni, framkvæmdastjóra Eyjaganga, að sérstakt sé að sjá kjarnaborinn Karl Prins kominn á sinn stað á Landeyjasandi með Vestmannaeyjar í bakgrunni.

„Með því að bora niður á 300 metra dýpi fáum við áður óþekkt gögn um jarðlögin á þessu svæði, sem færir okkur nær raunhæfu mati á jarðgöngum til Eyja,“ segir Haraldur.

Gangaopið líklega ofar í landinu

Þótt talið sé líklegt að mögulegt gangaop á Landeyjasandi yrði staðsett ofar í landi telja forsvarsmenn verkefnisins mikilvægt að taka kjarnasýni sem næst strandlínunni. Þannig megi fá sem gleggsta mynd af jarðlögum á þeirri leið sem hugsanleg göng myndu liggja.

Play Video

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.