Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum reyndist minni en í síðustu bæjarstjórnarkosningum. Samkvæmt lokatölum greiddu 2.649 atkvæði af 3.538 á kjörskrá, sem jafngildir 74,9% kjörsókn.
Til samanburðar var kjörsókn í bæjarstjórnarkosningunum árið 2022, 80,9%, árið 2018, 83,2% og árið 2014, 74,7%. Munurinn frá kosningunum árið 2022 nemur um sex prósentustigum, en kjörsóknin nú er þó svipuð og hún var árið 2014. Síðustu sveitarstjórnarkosningar hafa almennt einkennst af kjörsókn yfir 80%, en nú fór hún niður fyrir 75% í fyrsta sinn síðan árið 2014.
Þá má geta þess að kjörsóknin um síðustu helgi var mun meiri í öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu en í kosningunum fyrir fjórum árum. Sama gildir um nokkur stærstu sveitarfélögin á landsbyggðinni.
Eitt sem vekur athygli er að kjósendum í Eyjum hefur fjölgað töluvert frá síðustu sveitarstjórnarkosningum. Nú voru 3.538 á kjörskrá, samanborið við 3.284 árið 2022, sem er fjölgun um 254 kjósendur, eða ríflega 7,7%.
Yfirkjörstjórn Vestmannaeyja hefur nú lokið yfirferð sinni yfir breytta atkvæðaseðla og sent kosningaskýrslu og yfirlýsingu um úrslit til Landskjörstjórnar. Niðurstaðan staðfestir áður birt úrslit kosninganna.
Yfirferðin sýnir að breytingar kjósenda á listum höfðu ekki áhrif á niðurstöðuna. Á D-lista fékk oddvitinn Eyþór Harðarson 23 útstrikanir, Trausti Hjaltason 43 og Hildur Sólveig Sigurðardóttir 25. Á E-lista fékk Arndís María Kjartansdóttir 18 útstrikanir og Anton Örn Björnsson 10. Á M-lista voru útstrikanir enn færri, þar sem Jón Þór Guðjónsson fékk tvær og Sæunn Magnúsdóttir eina.