Kjötsúpukvöld Karlakórs Vestmannaeyja á morgun
Karlakórinn tók lagið á yndisstund stjórnandans á fimmtudaginn. Frábærir.

Karlakór Vestmannaeyja býður alla karlmenn velkomna í kjötsúpuveislu í Akógessalnum annaðkvöld, miðvikudag 18. september klukkan 20:00. Kjötsúpukvöld KKVE er kjörið tækifærið til að kynna sér starf kórsins og ganga til liðs við einn skemmtilegasta félagsskap sem hugsast getur. Við viljum endilega sjá sem flest ný andlit og hvetjum við karlmenn á öllum aldri til að láta sjá sig og draga jafnvel einn eða tvo félaga með sér til stuðnings.

Við erum alltaf að leita að góðum mönnum og stefnum við að ölfugu starfi í vetur. Það stendur mikið til í vetur þar sem endurreysn kórsins fagnar 10 ára afmæli. Fyrirhuguð er í vor fyrsta ferð kórsins út fyrir landsteinana. Í boði verður geggjuð kjötsúpa, enn betri félagskapur, “léttar veitingar” og söngur! Hvað er hægt að biðja um meira á fallegu haustkvöldi?

Hvað segja meðlimir um kórstarfið: „Þetta er svo frábært. Enginn ætti að yfirgefa þessa jarðvist án þess að hafa allavega prófað að vera í kór,“ segir Jarl Sigurgeirsson, skólastjóri Tónlistaskóla Vestmannaeyja.

„Við erum ekki að þessu afþví okkur sárvantar mannskap. Okkur finnst bara ósangjarnt að aðrir missi af þessu,” segir Sindri Ólafsson formaður stjórnar Karlakórs Vestmannaeyja.

„Frá því að ég var krakki hefur mér alltaf fundist gaman að syngja og að syngja í kór með hópi af hressum körlum er mjög upplífgandi og skemmtilegt hobbí. Það er nauðsynlegt að eiga gott hobbí,“ segir Andri Hugó Runólfsson raddformaður í 2. bassa.

 

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.