Áfram Noregur í kvöld - Heimisáhrifin virka
Nú er komið að okkur Íslendingum að standa með Norðmönnum. Þeir stóðu sannarlega með okkur sumarið 2016
Forsíða Verdens Gang 28. júní 2016 vakti mikla athygli. Fyrirsögnin var á íslensku – „Já, við elskum þetta land!“ – til heiðurs íslenska landsliðinu eftir sögulegan sigur á Englandi í 16-liða úrslitum EM í Frakklandi.
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Þegar Norðmenn mæta Englendingum í átta liða úrslitum Evrópumótsins í kvöld rifjast upp ógleymanlegar minningar frá sumrinu 2016, þegar íslenska karlalandsliðið heillaði knattspyrnuheiminn á Evrópumótinu í Frakklandi. Eftir sögulegan 2:1 sigur Íslands á Englandi 27. júní það ár ríkti mikil gleði víða um Norðurlönd. Í Noregi var afrekinu fagnað sérstaklega og eitt stærsta dagblað landsins, Verdens Gang (VG), tileinkaði íslenska liðinu forsíðu daginn eftir.

Á forsíðunni var mynd af Kára Árnasyni fagna sigrinum og fyrirsögnin var ekki á norsku heldur íslensku: „Já, við elskum þetta land!“ Undir henni var skýrt hvað setningin þýddi á norsku. Þetta vakti mikla athygli enda er „Ja, vi elsker dette landet“ fyrsta setning norska þjóðsöngsins og hefur sterka táknræna merkingu fyrir Norðmenn. Með þessari óvenjulegu forsíðu sýndi VG bæði íslenska landsliðinu og íslensku þjóðinni mikla virðingu. Og ennþá sjá Norðmenn eftir því að missa Ísland í hendur Dana 1397.

 

Erling er, þó ungur sé, kominn í hóp hinna stóru í alþjóðaknattspyrnunni.

 

Við vorum stödd í Noregi þessa daga og fundum vel fyrir stemningunni sem ríkti. Hvar sem við komum vakti það athygli að við vorum Íslendingar og Norðmenn vildu ræða afrek landsliðsins. Það er gaman að rifja upp þá daga núna. Vorum í bænum Bryne, skammt frá Stavanger þar sem Erling Haaland ólst upp. Á þeim tíma var hann efnilegur ungur leikmaður. Hver veit nema framganga íslenska liðsins hafi orðið honum og öðrum ungum norskum knattspyrnumönnum innblástur. Það er ekki ólíklegt.

Frá þeim tíma hafa „Heimisáhrifin“, sem ég kenni við okkar mann, Heimi Hallgrímsson orðið áberandi víða um heim. Litlar knattspyrnuþjóðir hafa í auknum mæli sýnt að þær geta keppt við stærstu þjóðir heims með góðu skipulagi, samheldni og trú á eigin getu. Árangur Grænhöfðaeyja á HM í ár er eitt skýrasta dæmið um þá þróun,en þau eru fleiri.

Í kvöld hafa hlutverkin hins vegar snúist við. Nú eru það Norðmenn sem freista þess að leggja Englendinga að velli í átta liða úrslitum og skrifa sinn eigin kafla í knattspyrnusöguna. Nú er komið að okkur Íslendingum að standa með Norðmönnum. Þeir stóðu sannarlega með okkur sumarið 2016 og fögnuðu afrekum íslenska landsliðsins eins og þau væru þeirra eigin.

Ómar Garðarsson.

Nýjustu fréttir

Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.